|
Ari Guðmar Fagrahjalla 13 Heimasíða: Verður vonandi nokkuð virk. Mun birta myndir og fréttir frá Vopnafirði eftir atvikum, ásamt ýmsu til skemmtunnar og fróðleiks Vinsamlegast skráið ykkur í gestabókina. |
|
16.05.2012 05:15Veðurlýsing
Veðrið kl 06:00 hæg NV átt skýjað úrkomulaust að mestu frost 3°
Austurland að Glettingi Norðvestan 3-8 m/s, skýjað að mestu og stöku smáél.
Vestan 3-8 í fyrramálið og úrkomulaust, en norðlægari eftir hádegi og dálítil
slydda eða snjókoma. Vægt frost, en hiti 0 til 4 stig yfir hádaginn. Böl þó ræni huga og hold, hátt skal mæna og þrauka. Undan snænum fæðir fold fagur græna lauka. Höfundur Kristján Sigurðsson VÍSA DAGSINS Horuð lóa
hölt og skökk Höfundur:Andrés Hallgrímsson Valberg MORGUNBROSIÐ Ung og falleg stúlka er á spítalanum að gangast undir smávægilega aðgerð. Hún er sett á sjúkrarúm og rennt fram á gang þar sem hún þarf að bíða eftir að skurðstofan verði tilbúin. Ungur maður í hvítum slopp kemur að henni, flettir frá henni sloppnum og byrjar að skoða hana. Hann labbar síðan í burtu og Þegar þriðji maðurinn er kominn og byrjar sömu skoðunina, þá verður hún óþolinmóð og segir: "Allar þessar skoðanir eru í lagi og vel þegnar, en hvenær byrjar aðgerðin?" "Ekki hugmynd," segir maðurinn, "við erum bara að mála hérna innar á ganginum
ORÐ DAGSINS Af reynslunni lærði ég,að enginn lærir neitt af reynslunni
Skrifað af AGH 15.05.2012 11:24FagradalsbáturinnSpurði um þennan bát í gær ? ![]() Myndin tekin við Búðarmölina Fékk lítil viðbrögð,en samkvæmt sameiginlegum heimildun Árna Magnússonar (faðir hans Magnús Guðmundsson var annar eigandinn) og Jóns Andréssonar sem var hinn eigandinn .Var þessi bátur smíðaður á Fáskrúðsfirði ári 1953 af Einari Sigurðsyni sem var þekktur bátasmiður og smíðaði báta af ýmsum gerðum og stærðum.Þessi bátur var opinn um 2,8 tonn með 8 hestafla tveggja strokka Albin vél. vélinni, en rúmlega 6 eða 61/2 mílu með
Sóló-vélinni sem sett var í hann (gömul) 1968. Siglingin í Fagradal tók því
1klst. og 30-40 mín. Báturinn var síðast notaður 1970.
Kv. Árni Mgnússon Báturinn hét Vémundur þegar hann var keyptur en hlaut nafnið Bjarnarey við hingaðkomu,og er fyrri bátur Fagradælinga með þessu nafni.Heimild: Árni Magnússon Jón Andréssonn Um eigendur nöfn og smíðaár drengjanna sem eru með Sigmundi á myndinn er allt í þoku og mistri ennþá. Bíð spenntur eftir upplýsingum Skrifað af AGH 15.05.2012 05:51VeðurlýsingVeðrið kl 06:00 NNV kaldi skýjað úrkomulaust að mestu frost 3°
Austurland að Glettingi Norðvestan
8-13 m/s og dálítil él, en dregur smám saman úr vindi og éljum þegar kemur fram
á daginn. Norðvestan 3-8 á morgun, skýjað með köflum og úrkomulaust að mestu.
Frost 0 til 4 stig, en hiti um eða rétt yfir frostmarki á morgun. Herðir frost og fölna hagar, Höfundur:Óþekktur VÍSA DAGSINS Grund um
hrökklast geðstirður Höfundur:Eyjólfur Jóhannesson Hvammi MORGUNBROSIÐ Bimba vaknaði um miðja nótt og áttaði sig á því að eiginmaðurinn var ekki í rúminu. Hún smeygði sér í náttkjólinn og fór niður. Sat þá ekki maðurinn við eldhúsborðið og húkti yfir ísköldum kaffibolla. Hann virtist annars hugar og starði tómeygður á vegginn. Bimba sá hann þurrka tár af kinnunum og súpa á kaffinu. - "Hvað er að ástin mín? Af hverju siturðu hér einn um miðja nótt," spurði hún. Addi leit upp og sagði: "Manstu þegar við vorum að hittast á laun fyrir 20 árum, aðeins 16 ára gömul." - "Já, ég man vel eftir því," sagði Bimba. - "Manstu þegar pabbi þinn kom að okkur þar sem við vorum að elskast í aftursætinu í bílnum mínum?" - "Já, ég man líka vel eftir því." -"Manstu þegar pabbi þinn dró upp byssuna, beindi henni að höfðinu á mér og sagði: Annað hvort giftist þú dóttur minni eða verður næstu 20 árin í fangelsi." - "Já, ég man vel eftir þessu elskan mín," sagði Bimba og settist við hlið eiginmannsins. Hann þurrkaði tár af hvörmunum og sagði: "Veistu... ég hefði losnað út í dag!"
ORÐ DAGSINS Ég er hógvær í kröfum .Alltaf ánægður með það besta
Skrifað af AGH 14.05.2012 09:46Sumarsnjórinn kominnFyrir mokstur ![]() ![]() Eftir mokstur ![]() Gjörið þið svo vel og fáið ykkur sæti Skrifað af AGH 14.05.2012 06:57Veðurlýsing
Veðrið kl 07:00 NNA kaldi skýjað úrkomulaust að mestu frost 1°
Austurland að Glettingi Norðvestan 13-20 og snjókoma en síðar él, hvassast við ströndina. Vægt frost. Lægir smám saman á morgun. Spá gerð: 14.05.2012 06:15. Gildir til: 15.05.2012 18:00. Nú er frost
og norðanátt. Höfundur:Árni Jónsson frá Múla VÍSA DAGSINS Nú er úti veður vott, Óþekktur höfundur MORGUNBROSIÐ Jónas var eitthvað svo slappur, en vissi ekkert hversvegna, svo hann fór til læknis. Læknirinn skoðaði hann í krók og kima og spurði svo:- Reykirðu mikið ? Nei, ég hef aldrei snert sígarettur, svaraði Jónas. Það er nú verra, sagði læknirinn. Það hefði nefnilega verið svo gott að ráðleggja þér að hætta. ORÐ DAGSINS Lygin þýtur um hálfan
heiminn áðuren sannleikurinn kemst í stígvélin að hálfu
Kl. 06:00 Skrifað af AGH 13.05.2012 20:4180 ára afmæliÁttræð í dag Ásdís Pétursdóttir. Frá Fagurhóli í Selárdal ![]() Bauð hún til veglegrar veislu í Safnaðarheimilinu ![]() ![]() ![]() ![]() 13.05.2012 12:48Versnandi veðurkl 12:30 Vindur C.a 12 - 14 metrar slydda hiti um frostmark ![]() ![]() Skrifað af AGH 13.05.2012 09:25VeðurlýsingVeðrið kl 07:00 Veðrið kl 07:00 NNA kaldi skýjað úrkomulaust hiti 3°
Austurland að Glettingi Norðan
8-13 og rigning eða slydda, en 13-20 og snjókoma eða slydda síðdegis. Heldur
hægari í nótt, norðvestan 10-18 á morgun og él. Hiti um eða yfir frostmarki að
deginum, en frystir í kvöld. Kalda er í kólgunni. Höfundur:Stephan G. Stephansson VÍSA DAGSINS Þér við lendar, ljúfa frú, læt ég endast nótt án trega. Allvel kenndur er ég nú, og mér stendur bærilega MORGUNBROSIÐ Drukkinn maður
gengur inn á bar þar sem mótorhjólagengi heldur til, sest við barinn og pantar
sjúss. Hann lítur í kring um sig og sér þrjá mótorhjólatöffara sitjandi við
borð. Hann stendur upp , staulast að borðinu, hallar sér fram, horfist í augu
við stærsta, ljótasta, og illvígasta mótorhjólatöffarann og segir:"Ég kom við
hjá ömmu þinni í dag og ég sá hana á ganginum kviknakta. Maður minn, hún er
stykki sem stingandi er í!"..
ORÐ DAGSINS Ég get forðast freistingar - nema þær séu ómótstæðilegar ![]() Skrifað af AGH 12.05.2012 22:32Kaupfélagsferð![]() Starfsfólk KVV/ Verslunarmannahelgin.
Til eru nokkrar myndir af starfsfólki KVV í ferðalagi um verslunarmannahelgina. H. Ásgr. bauð oft til ferðalags á kaupfélagsrútunni, og oft voru nokkrir gestir með í ferð.
Þessi mynd er af ferð starfsmanna KVV inn í Arnarvatn. um verslunarmannahelgina Davíð Vigfússon og Ólafur Antonsson, ramba með útilegugræjur og silunganet eftir gleðistundir á Arnarvatni. Ég var með í þessari ferð og man handa vel, frábærlega skemmtileg. Ég held að starfsfólk KVV hafi alltaf verið mjög samstæður og samhentur hópur. Amk í den. hkh
Skrifað af AGH 12.05.2012 16:51MiðvikudagsmyndinFékk lítil viðbrög kannski vegna þess að það komu svo fljótt nöfn á fólkið.Og þar sem engin hefur borið brigður á að þau séu rétt,,birti ég myndina aftur ásamt þeim sem fyrst nafngreindi hana.
Birna H. Einarsdóttir, Kristbjörg Jörgensdóttir, Lára Hilmarsdóttir, Trausti Gunnsteinsson, Ingólfur Sveinsson, Sigtryggur Sigurðsson, Rósa Aðalsteinsdóttir og Sólbjört Gunnarsdóttir......eða hvað? Signý Björk Skrifað af AGH Flettingar í dag: 901 Gestir í dag: 162 Flettingar í gær: 1055 Gestir í gær: 204 Samtals flettingar: 1285844 Samtals gestir: 188772 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15 |
Eldra efni
Um mig Nafn: Ari G HallgrímssonFarsími: 895 2645Tölvupóstfang: arina@simnet.isMSN netfang: arina@simnet.isAfmælisdagur: 24.11Heimilisfang: Fagrihjalli 13Staðsetning: VopnafjörðurHeimasími: 473 1245Önnur vefsíða: FacebookMySpace vefsíða: NeiUm: Kominn af léttasta skeiði, en léttur á mér samt, ekkert mjög þungur eiginlega bara léttur,frekar léttlyndur,eða þannig skoTenglar
clockhere Flettingar í dag: 901 Gestir í dag: 162 Flettingar í gær: 1055 Gestir í gær: 204 Samtals flettingar: 1285844 Samtals gestir: 188772 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15 |
Titill atburðar
atburður liðinn í
1 ár
10 mánuði
23 daga