Flettingar í dag: 901
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 1055
Gestir í gær: 204
Samtals flettingar: 1285844
Samtals gestir: 188772
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15

Ari Guðmar Fagrahjalla 13

Heimasíða: Verður vonandi nokkuð virk. Mun birta myndir og fréttir frá Vopnafirði eftir atvikum, ásamt ýmsu til skemmtunnar og fróðleiks Vinsamlegast skráið ykkur í gestabókina.

22.04.2012 05:01

Veðurlýsing

Veðrið kl 06 :00 Hæg NA átt skýjað úrkomulaust að mestu frost 1-2°


Norðaustan 3-8 m/s, skýjað að mestu, en þurrt að kalla. Frost 1 til 6 stig, en víða frostlaust á daginn.
Spá gerð: 21.04.2012 21:44. Gildir til: 23.04.2012 00:00.

Kári hlær með kuldagný,
klakinn særir gróður.
Helserk færir alla í
okkar kæru móður.

Magnús Jóel Jóhannsson

 VÍSA DAGSINS

Öll hann svíkur orð og vé
enginn slíkur mundi.
Enda er flíkað að hann sé
út af tík og hund

Höfundur:Árni Jónsson frá Múla

MORGUNBROSIÐ

Hvernig lauk rifrildinu á milli ykkar hjónanna?
-Hún kom skríðandi til mín.
-Og hvað sagði hún?
-Komdu undan rúminu, bölvaður auminginn þinn !!

emoticon

ORÐ DAGSINS

Það eru fáir vinir hreinskilnir.

Enda eftirspurnin lítil.

emoticon

Kl 06:00

 

21.04.2012 14:23

Gamla fréttin

Gamall sveitabær á Austurlandi.


BUSTARFELL

Ekki Burstarfell

HLÍN  23.árg.1.tbl.01.01.1940

Á Sambandsfundi austfirskra kvenna á Norðfirði í fyrra var samþykt tillaga þess efnis, að hafist yrðihanda um viðhald á einum bæ í fornum stíl á Austurlandiog leist fundarkonum bærinn á Burstarfelli í Vopnafirði líklegastur til þeirra hluta.*Um þetta skrifar óðalsbóndinn í Burstarfelli, MetúsalemMetúsalemsson, sem svar við fyrirspurn umþetta mál:"Mjer kemur það ekki á óvart, að Burstarfellsbær var talinn heppilegur til varðveislu, því það hafa margir sagt við mig, að þessum bæ ætti að halda við og að hann væri sjálf valinn, ef um einn bæ væri að ræða á Austurlandi, og ber margt til þess. Hann er algerlega í fornum stíl með mesta myndarbrag, sex burstir fram á hlaðið með óvenju fallegri baðstofu, sem nú fer að nálgast 100 árin, þar að auki með stofu og svefnlofti sem þótti viðbrigðafalleg í tíð afa míns, en sem nú er komin að hruni, enda yfir 100 ára.Grunnflötur bæjarins í heild er 8-900 álnir. - Nú er bærinn orðinn mjög hrörlegur og mundi viðhald hans kosta æði mikið fje".Burstarfell mun vera elsta eða næstelsta óðal landsins,þar sem sama ættin í beinan legg hefur búið í 408 ár. - Kirkja var þar fyr á öldum. Hyggur Metúsalem bóndi grunn hennar óskaddaðan, þó hann sje löngu kominn í jörð niður.Það hefur mikið menningarlegt gildi að viðhalda ti lminja bæ með gömlu sniði, helst með öllum búnaði og áhöldum. - Á Norðurlandi hafa þegar 3 gömul prestssetur verið varðveitt. Á þjóðminjavörður miklar þakkir skilið fyrir áhuga sinn í því máli. - Oft hefur verið rætt um að nauðsyn bæri til að eiga fallegan bæ  í fornum stíl í eða við Reykjavík. - Um gamla skálann

á Keldum á Rangárvöllum hefur og verið tíðrætt í þessu sambandi.Um varðveislu bæjar á Austurlandi hefur ekki verið rætt opinberlega fyrr en með samþykktinni á Norðfirði.- Það er ekki vansalaust fyrir Austurland að vera þarna eftirbátur, og eiga þó ef til vill kost á veglegasta torfbænum á íslandi. - Án efa mundi það hafa mikilog góð áhrif, ef sýslubúar í fjórðungnum sýndu áhugasinn í þessu máli.

* H. B.,

 

21.04.2012 11:49

Gamla myndin

Valgerður Jakobsdóttir. Edil Jensdóttir. Sigurður Björnsson.
 Steinunn Ásmundsdóttir

21.04.2012 05:12

Veðurlýsing


Veðrið kl 06 :00 Hæg NA átt skýjað úrkomulaust frost 1-2°


Austan og norðaustan 3-8 m/s og stöku él, einkum við ströndina. Frost 1 til 6 stig, en víða frostlaust á daginn.
Spá gerð: 20.04.2012 21:49. Gildir til: 22.04.2012 00:00.

Kulda þýður blendinn blær

blæs um hlíð og dali.
Oft er lýðum nokkuð nær
norðan hríðarsvali.

Höfundur:Bjarni Pálsson

 VÍSA DAGSINS

Hvar sem álpast amlóðinn.
Engir bjálfann virða.
Ei vill sjálfur Andskotinn
apalkálfinn hirða.

Höfundur:Sveinn Hannesson

 MORGUNBROSIÐ
Hjón voru að versla þegar bóndinn tekur upp bjórkassa og leggur í körfuna.
-Hvað heldurðu að þú sért að gera? spyr frúin.
-Þetta er á útsölu, 24 baukar á 3600 kall.
-Láttu kassann aftur á sinn stað, við höfum ekki efni á þessu, segir frúin með þjósti og þau halda áfram að versla.
Nokkru síðar tekur konan upp andlitskrem á 7200 kr. og setur í körfuna.
... ... -Hvað heldurðu að þú sért að gera? spyr bóndinn.
-Þetta er andlitskremið mitt. Það gerir mig fallega.
-Það gera nú líka 24 baukar af bjór og þeir kosta helmingi minna!

emoticon

ORÐ DAGSINS

Menntun er það sem eftir er, þegar allt er gleymt ,sem maður lærði

emoticon


Kl.06:00

20.04.2012 06:37

Gamla fréttin

Vopnafjörðu: Síldin söltuð og flökuð af krafti

Morgunblaðið.250.tbl.05.11.1985. bls.18

Síldarvertíðin stendur nú sem hæstog er söltun í fullum gangi hér á Vopnafirði á söltunarstöð Tanga hf.

 

Fréttaritari fór á planið sl. sunnudagskvöld og ræddi fyrst við Sigurð Sveinsson aðstoðarverkstjóra.Sigurður sagði að búið væri aðsalta í 5.700 tunnur og búast mætti við 7-750 tunnum úr yfirstandandi törn, en verið var að landa úrSigþóri ÞH 100. Nú landar Sigþór öilum sínum afla hér hjá Tangahf. og sagði Sigurður að mjögbrýnt væri að hafa báta í föstum viðskiptum og tryggja þannig vissanafla til söltunar þótt alltafbærist eitthvað frá öðrum skipum. Ég spurði Sigurð að lokum hverjarværu fljótastar að salta af þeimstúlkum sem væru fastráðnar hjá þeim. Svarið kom um hæl. Þæ rheita Sigríður Garðarsdóttir ogÁsrún Jörgensdóttir.Aðspurðar sögðu þær stöllur aðþetta væri erfitt þegar væru langartarnir, en á móti kæmi að þettagæfi þokkalegan pening ef þær nenntu að halda vel áfram. Mesthafa þær saltað 115 tunnur í einnilotu.Mikil vinna hefur á undanförnumárið verið lögð í söltunarstöðinatil lagfæringa og stækkunar áhúsnæði og er nú m.a. komin uppmjög góð aðstaða til flökunar ásíld. Þar er yfirmaður Páll Aðalsteinssonog sagði hann að búið væri að flaka 150 tunnur á vertíðinni.Hann var spurður hvort þaðværi ekki lítið miðað við þá góðu aðstoðu, sem nú er fyrir hendi ogmeð það í huga hversu langt erliðið á vertíðina."Jú, það er rétt. Við hefðumviljað vera búnir að flaka miklumeira, ekki síst vegna tryggrarsölu á flökum, en okkur hefur tilfinnanlegavantað fólk og gátumþví ekki byrjað flökun fyrr en núfyrir skömmu. Nú hefur ræzt úr með mannskap og við vonumst tilað geta flakað stöðugt það semeftir er vertíðar og vinna þannig upp tapaðan tíma," sagði Páll

Björn:

 

20.04.2012 04:42

Veðurlýsing

Veðrið 06:00 Hægviðri skýjað úrkomulaust frost 1-2°

Norðaustan 3-8 m/s og él, einkum við sjóinn. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust að deginum.
Spá gerð: 19.04.2012 21:42. Gildir til: 21.04.2012 00:00.

Ég heyri stormsins ráma róm

Raddir fleygra vina.

Greini vor og gullin blóm

gegnum stórhríðina.

Höfundur:Gunnar Einarsson Bergskála

Vísa dagsins

Allt var kyrrt og allt var hljótt

Aðeins kvik á Möngu.

Það var eina Þorranótt

þetta var fyrir löngu

Höf:ókunnur

Morgunbrosið

Steini var að skemmta sér í bænum hann krækti í svaka gellu og fór síðan með henni heim. þau týndu af fötin en gellan áfram , fyrst tók hún af sér hárkollu og setti á kommóðuna síðan tók hún út úr sér tennurnar og setti á kommóðuna svo annað augað, síðan fóru gerfi brjóstin upp á kommóðu gerfi hendi og gerfi fótur fóru sömu leið þegar öllu þessu var lokið lagðist hún uppí rúm og spurði Steina hvort hann ætlaði ekki að koma til sín, þá sagði Steini " ja - ég er bara að reyna að ákveða mig hvort ég eigi að sofa hjá þér eða kommóðunni!!

emoticon

Orð Dagsins

Velgengni manns er að hafa meiri tekjur en kona hans getur eytt

.Velgengni konu er að ná í slíkan mann

emoticon

Kl.06:00
 



19.04.2012 13:09

Gamla myndin


Myndin tekin á Fellsrétt trúlega 1961,það mun ekki hafa verið réttað í maí.
Gunnar Runólfsson.Helgi Gíslason og ?
Hver þekkir manninn?

19.04.2012 06:31

Veðurlýsing


Góðan dag og gleðilegt sumar kæru bloggvinir, þakka ykkur fyrir veturinn.Þennann fyrsta sumardag er allt hvítt snjóaði meira og minna í allan gærdag og fram á nótt Núna kl 06:00 er hægviðri skýjað úrkomulaust og frost um 2° Þannig að það fraus bærilega saman sumar og vetur.
Svo er eftir að vita hvort það virkar.

Veðrið kl 06 :00 Hæg NA átt skýjað úrkomulaust frost 1-2°

Austurland að Glettingi

Norðaustan 3-8 m/s og dálítil snjókoma með köflum. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust að deginum.
Spá gerð: 18.04.2012 21:52. Gildir til: 20.04.2012 00:00.

Váleg gerast veður öll.
Vindur norðan élin.
Svanir fljúga suður um fjöll
sýna oss undir stélin.

Höfundur:Grímur Sveinbjörn Sigurðsson, Jökulsá

 VÍSA DAGSINS

Ég er votur jafnt sem þú.
Ég ber af því angur.

Ég vil fá að éta nú.
Ég er orðinn svangur.

Höfundur:Sigurður blindur

MORGUNBROSIÐ

Síðasta laugardag vaknaði ég snemma. Ég klæddi mig hljóðlega, útbjó nesti, kallaði í hundinn og læddist út í bílskúr. Ég húkkaði bátinn aftan í bílinn, opnaði bílskúrshurðina og var kominn hálfur út þegar ég sá að úti var brjálað rok og rigning. Ég bakkaði aftur inn í skúrinn og kveikti á útvarpinu, aðeins til að uppgötva að svona átti veðrið að vera alla helgina. Ég fór því aftur inn, klæddi mig hljóðlega úr og læddi mé upp í rúm. Ég kúrði mig upp við konuna mína. Ákveðinn í að fá mér gott í kroppinn hvíslaði ég að henna, " Það er brjálað veður úti". Elskuleg konan mín til 10 ára svaraði strax," Hugsaðu þér hvað maðurinn minn er heimskur að vera úti að veiða í þessu veðri"
Og þá fór allt í bál og brand

emoticon emoticon emoticon

 ORÐ DAGSINS

Það sem er kallað festa hjá kóngi,heitir þrjóska hjá asna.

emoticon


18.04.2012 23:06

Gamla myndin


Þórey Ólafsdóttir . . Jóhanna Rannveig Pétursdóttir

18.04.2012 13:16

Gamla myndin

Spurning dagsins hvert var farið með þetta hús??

Það fer ekki á milli mála hvaða hús þetta er eða hvað.?
Þar sem engin svör hafa borist,verð ég að styðjast við stopult minn. Húsið er gamla Skálanes,Það mun hafa verið meiningin Kristjáns Helgasonar að flytja það inn að Bjargi og setja það niður þar. Ekki tókst betur til en svo að einhversstaðar þar sem nú er Kolbeinsgata 47 eða 48 var húsið að niðurlotum komið svo sú ferð var ekki lengri.Veit eigi meira um þá sögu.

18.04.2012 09:40

Veðurlýsing

Kl.7:30

Veðrið kl 06 :00

Austurland að Glettingi

Norðaustan 3-10 m/s og skýjað með köflum. Éljagangur í kvöld og nótt en úrkomulítið síðdegis. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust yfir daginn.
Spá gerð: 17.04.2012 21:50. Gildir til: 19.04.2012 00:00.

Aldinn Norðri ygglir brá.
Útlitið
því gránar.
Hamramar því hlaupast á
heimasætur Ránar

Höfundur:Stefán Stefánsson

VÍSA DAGSINS

Gekk ég út í Kúka Krók
sem karlmanna er siður.
Draup úr enda, lak úr lók.
Ég lýsi því fyrir yður.

Höfundur:Magnús Teitsson

MORGUNBROSIÐ

Kona ein hringdi á lögreglustöðina og vildi láta lýsa eftir manni sínum. Lögreglumaðurinn tók niður allar upplýsingar ,spurði síðan,,eru einhver skilaboð sem við getum fært honum?  Já svaraði konan segið honum að móðir mín sé hætt við að koma um jólin !

ORÐ DAGSINS

Ef frægðin kemur ekki fyrr en eftir dauðann,liggur mér ekkert á henni

Kl.08:30


Tækni örðugleikarnir halda áfram það er sama hvað ég set þessa færslu oft inn húm birtist ekki samt

Tilraun ? veit ekki númer hvað

17.04.2012 12:01

Bæjarrölt

Á göngu minni um bæinn í morguntók ég nokkrar myndir,birti sumar þeirra hér teknar af handahófi


Björgvin Hreinsson hafnarvörður var önnum kafinn ásamt aðstoðarmönnum sínum þeim Hjálmari Björgólfssyni og Þóroddi Árnasyni að endurnýja og laga Fríholt af viðlegukantinum.

Mælifell byggir og breytir starfsmannaaðstöðunni í uppsjávarhúsi Granda.
Efri mynd Suðurhlið
Neðri mynd Norðurhlið

Saltbirgðum var skipað hér í land,mér var sagt að megnið af þessu salti færi á Bakkafjörð

Faxi kom með fyrsta Kolmunnafarminn í morgun

Flutningabíll affermdur


17.04.2012 09:42

Gamla myndin

Eru ekki allir í stuði ?

Björn Björnsson. (Bjössi Sól) Flosi Jörgensson. Árni Árnason. (Bói) Sigurður Björnsson. (Siggi Kross)

17.04.2012 08:46

Veðurlýsing

Veðrið kl.06:00  hæg A átt hiti um frostmark.


Austan 3-10 m/s og léttskýjað en skýjað með köflum við austurströndina. Norðaustlægari seinnipartinn og stöku él, einkum við ströndina. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust yfir daginn.
Spá gerð: 17.04.2012 06:30. Gildir til: 18.04.2012 18:00.

 Frostið bítur kalda kinn.
Klökkna hlýtur muni.
Ekki þrýtur ótíðin.
En sá vítis bruni.

Sveinn Hannesson frá Elivogum

 Vísa dagsins

Ég hef nú reynt og fundið flest
sem fyrir stígur nokkurn mann.
En konuleysið kvelur mest,
kvelur meira en samviskan
.

Höfundur:Páll Ólafsson

 MORGUNBROSIÐ

Gamall maður kemur inn í búð og í röðinni við kassan

stendur ungur maður með grænar, gular og rauðar strípur og hanakamb.
Ungi maðurinn tekur eftir því að gamli maðurinn starir á hann og segir:
"Hvað er að þér gamli minn? Gerðir þú aldrei neitt villt þegar þú
varst ungur?" "
Jú einu sinni var ég svo fullur að ég reið páfagauk.Ég var að spá í hvort þú gætir verið sonur minn

 Orð Dagsins

Áður en kona giftist harmar hún,að ekki er neinn karl í lífi hennar;eftir giftinguna,að ekki er neitt líf í karli  hennar


Flettingar í dag: 901
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 1055
Gestir í gær: 204
Samtals flettingar: 1285844
Samtals gestir: 188772
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15

Um mig

Nafn:

Ari G Hallgrímsson

Farsími:

895 2645

MSN netfang:

arina@simnet.is

Afmælisdagur:

24.11

Heimilisfang:

Fagrihjalli 13

Staðsetning:

Vopnafjörður

Heimasími:

473 1245

Önnur vefsíða:

Facebook

MySpace vefsíða:

Nei

Um:

Kominn af léttasta skeiði, en léttur á mér samt, ekkert mjög þungur eiginlega bara léttur,frekar léttlyndur,eða þannig sko

Tenglar

clockhere
Flettingar í dag: 901
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 1055
Gestir í gær: 204
Samtals flettingar: 1285844
Samtals gestir: 188772
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15
Flettingar í dag: 901
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 1055
Gestir í gær: 204
Samtals flettingar: 1285844
Samtals gestir: 188772
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15

Tenglar

Flettingar í dag: 901
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 1055
Gestir í gær: 204
Samtals flettingar: 1285844
Samtals gestir: 188772
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15

Titill atburðar

atburður liðinn í

1 ár

10 mánuði

23 daga

Flettingar í dag: 901
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 1055
Gestir í gær: 204
Samtals flettingar: 1285844
Samtals gestir: 188772
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:02:15
clockhere
Teljari